Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: október 2026
Persónuverndarstefna þessi lýsir vinnslu persónuupplýsinga við notkun Keppniskerfis. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (almenna persónuverndarreglugerðin, GDPR).
Ábyrgðaraðili
Keppniskerfi ber ábyrgð á vinnslu upplýsinga um eigin notendareikninga og rekstur þjónustunnar. Mótshaldarar ákveða hvaða persónuupplýsingar þeir skrá og birta um sín mót og bera ábyrgð á þeirri vinnslu. Keppniskerfi geymir þær upplýsingar og birtir þær samkvæmt ákvörðun mótshaldara. Fyrirspurnir má senda á keppniskerfi@keppniskerfi.is.
Hvaða persónuupplýsingar er unnið með?
Persónuupplýsingar berast frá notendum og mótshöldurum. Einnig eru skráðar upplýsingar við notkun þjónustunnar. Netfang er nauðsynlegt til að stofna reikning og skrá sig inn. Unnið er með eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn, netfang, hlutverk og tengingar við félög, lið og mót.
- Upplýsingar sem mótshaldarar skrá, svo sem netföng tengiliða og upplýsingar um lið.
- Innskráningar- og aðgangsupplýsingar, IP-tala, upplýsingar um vafra, boð og skrár um tölvupóstsendingar, breytingar og villur.
Lagagrundvöllur vinnslu
Heimild til vinnslu fer eftir tilgangi hennar:
- Þjónusta samkvæmt samningi: vinnsla upplýsinga sem er nauðsynleg til að veita umsamda þjónustu, þegar samningur er við viðkomandi einstakling (b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).
- Aðgangur að boði mótshaldara: notendareikningar sem stofnaðir eru að boði mótshaldara byggja á lögmætum hagsmunum mótshaldara og Keppniskerfis af að veita þeim aðgang sem boðið var (f-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).
- Öryggi, rekstur og notkunarmælingar: lögmætir hagsmunir af að verja aðgang, greina villur, halda þjónustunni starfhæfri og mæla notkun hennar til að bæta hana, að því marki sem réttindi viðkomandi einstaklings vega ekki þyngra (f-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).
- Lagaskyldur: þegar lög krefjast vinnslu eða varðveislu upplýsinga (c-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR).
Mótshaldarar ákveða heimild fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem þeir skrá um þátttakendur og tengiliði.
Í hvaða tilgangi er unnið með persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru notaðar til að auðkenna notendur, stýra aðgangi, senda innskráningarkóða og boð, halda utan um mót, lið, dagskrár og úrslit, tryggja öryggi, greina villur og mæla notkun þjónustunnar. Engar sjálfvirkar ákvarðanir, þar á meðal gerð persónusniðs, eru teknar um einstaklinga. Keppniskerfi selur ekki persónuupplýsingar.
Vinnsluaðilar og viðtakendur
Eftirfarandi þjónustuaðilar vinna persónuupplýsingar fyrir hönd Keppniskerfis við rekstur þjónustunnar:
- Neon - gagnagrunnur og afrit. Hýst í London, Bretlandi.
- Vercel - hýsing, skráageymsla, notkunar- og hraðamælingar. Vefþjónar keyra í Dublin, Írlandi.
- Resend - tölvupóstsendingar. Sent frá Írlandi.
- Sentry - villugreining. Hýst í Þýskalandi.
- Upstash - hraðatakmörkun til varnar misnotkun. Hýst í Írlandi.
- Mapbox - kort. Vafri notanda sækir kortin beint frá Mapbox í Bandaríkjunum. Við það berast IP-tala og upplýsingar um vafra, og Mapbox geymir IP-tölur í allt að 30 daga.
- Google - innskráning, þegar notandi velur að skrá sig inn með Google-reikningi. Google vinnur þær upplýsingar samkvæmt eigin persónuverndarstefnu.
Dagskrár og úrslit móta, ásamt nöfnum liða og félaga, eru birt opinberlega á vef viðkomandi móts. Allir þjónustuaðilarnir eru bandarísk fyrirtæki. Þótt gögn séu hýst í Evrópu geta þeir unnið með þau í Bandaríkjunum, til dæmis við rekstur og þjónustu. Slíkur flutningur byggist á vottun þeirra samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework). Bretland, þar sem gagnagrunnurinn er hýstur, hefur hlotið ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um að persónuvernd þar sé fullnægjandi. Nánari upplýsingar um verndarráðstafanir má fá hjá Keppniskerfi.
Hversu lengi eru gögn varðveitt?
Varðveisla fer eftir tegund upplýsinga og tilgangi vinnslunnar:
- Reikningsupplýsingar eru varðveittar á meðan þeirra er þörf til að veita notanda aðgang og þjónustu.
- Mótagögn eru varðveitt vegna skipulags, dagskrár og úrslita móta. Beiðnir um eyðingu persónuupplýsinga í þeim eru afgreiddar með viðkomandi mótshaldara.
- Sendingar-, breytinga- og öryggisskrár geta varðveist lengur ef þörf er á þeim til að rekja sendingar, leysa úr villum eða rannsaka misnotkun.
- Afrit gagnagrunns eru varðveitt í allt að fimm vikur. Eyðing úr virkum gagnagrunni fjarlægir því ekki strax eldri afrit.
Óska má eftir eyðingu persónuupplýsinga eða nánari upplýsingum um varðveislu þeirra. Ef tiltekin gögn þurfa að varðveitast áfram vegna lagaskyldu eða annarra gildra ástæðna er viðkomandi upplýstur um það.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar geta óskað eftir aðgangi að eigin persónuupplýsingum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu eða flutningi gagna og andmælt vinnslu þar sem það á við. Beiðnir skulu sendar á keppniskerfi@keppniskerfi.is. Beiðnum er svarað án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en innan mánaðar. Fresturinn getur lengst um allt að tvo mánuði ef beiðni er flókin eða beiðnir margar; viðkomandi er þá upplýstur um framlenginguna og ástæður hennar innan mánaðar frá móttöku beiðninnar. Beiðnir um upplýsingar sem mótshaldari skráði eru afgreiddar í samvinnu við hann.
Vefkökur og geymsla í vafra
Nauðsynlegar vefkökur eru notaðar fyrir innskráningu. Innskráningarlotur gilda almennt í sjö daga. Eftirlætislið og sumar viðmótsstillingar eru geymd í vafra notanda.
QR-kóðar dómara veita aðgang að skráningu úrslita. Ef mótshaldari ver vallarkóða með PIN-númeri er opnun hans geymd í nauðsynlegri vefköku í 12 klukkustundir.
Notkunarmælingar og villugreining
Vercel Analytics er notað til að telja heimsóknir og almenna notkunaratburði og Vercel Speed Insights til að mæla afköst. Atburðir um eftirlætislið innihalda ekki nöfn eða auðkenni liðanna. Sentry er notað til villugreiningar.
Nánar um mæligögn
- Innskráningar-, boðs- og dómarasíður eru undanskildar Vercel-mælingum. Leitarstrengir og brotamerki eru fjarlægð úr vefslóðum sem sendar eru.
- Skráðir eru atburðir þegar eftirlætisliði er bætt við eða það fjarlægt og þegar yfirlit eftirlætisliða er opnað. Val á liðum er geymt í vafra notanda.
- Samkvæmt lýsingu Vercel nota mælitækin ekki hefðbundnar rakningarvefkökur, en þau senda mæligögn frá vafranum.
- Sentry fær villugögn. Viðkvæmar aðgangsslóðir og leitarstrengir eru fjarlægð. Þegar villa er tengd við innskráðan notanda sendir Keppniskerfi aðeins notandaauðkenni, án nafns eða netfangs.
Börn
Þjónustan er notuð við barna- og unglingamót. Mótshaldarar geta skráð upplýsingar um lið og birt dagskrár og úrslit. Athugasemdum vegna persónuupplýsinga um börn sem kunna að vera skráðar eða birtar án viðeigandi heimildar má beina til Keppniskerfis eða viðkomandi mótshaldara.
Breytingar á stefnunni
Keppniskerfi áskilur sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnuna. Verulegar breytingar eru tilkynntar notendum með tölvupósti eða tilkynningu í kerfinu. Dagsetning síðustu uppfærslu kemur fram efst á síðunni.
Kvörtun til Persónuverndar
Einstaklingar eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd telji þeir að vinnsla persónuupplýsinga brjóti í bága við lög (personuvernd.is).
Fyrirspurnir og samskipti
Fyrirspurnir um vinnslu persónuupplýsinga hjá Keppniskerfi má senda á keppniskerfi@keppniskerfi.is.