Reglur
Fjöldi leikmanna : Sjö leikmenn eru inná velli hverju sinni í 6.flokks mótinu fimm í 7 & 8.flokks hlutanum. Fjöldi skiptimanna og skiptinga er ótakmarkaður. Ekki þarf að tilkynna dómara ef skipting á sér stað. Leikmaður, sem skipt hefur verið út af leikvelli, má ganga til leiks á ný. Ekki eru skráð úrslit á mótinu.
Stærð knattar : 6.flokkur: Nr. 3 og 7.flokkur & 8.flokkur: Nr.3
Leiktími :
- flokkur: 1 x16min 20 mínútna hólf.
- flokkur & 8. flokkur 1 x12min 15 mínútna hólf. Mikilvægt er að leikir hefjist á réttum tíma, þar sem tímarammi mótsins er þröngur. Sá dómari sem hvílir skal biðja þau lið sem leika næst um að vera tilbúin á réttum tíma. Séu lið ekki tilbúin á réttum tíma, styttist leikurinn sem því nemur þannig að leik lýkur á réttum tíma. Tímaverðir sjá um að halda utanum tíma á leikjum á öllum völlum. Þeir flauta viðmiðunarflaut þegar leikir eiga að hefjast og þegar þeir eiga að enda.
Rangstaða : Leikmenn eru ekki dæmdir rangstæðir.
Sending samherja á markmann : Markverði er heimilt að taka bolta upp sem sendur er til hans af samherja.
Aukaspyrna : Andstæðingur skal vera í a.m.k. 6m fjarlægð frá knetti, þegar aukaspyrna er tekin.
Hornspyrna : Skal tekin þar sem marklína og vítateigur skerast.
Víti : Skal tekið 8 metra frá marklínu.
Upphafsspyrna : Tryggja skal að andstæðingar séu í hæfilegri fjarlægð (fyrirbyggja að leikmenn betra liðs séu nánast ofan í þeim leikmönnum sem taka miðju).
Innspark & dómarauppkast: ekki er leyfilegt að skora beint úr innsparki eða dómarauppkasti, spila skal eina sendingu áður en skotið er.
Leyfum krökkunum að njóta sína að spila fótbolta og hjálpumst við að gera þetta mót að jákvæðri upplifun fyrir alla.