3 stig eru skráð fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli.
Upphafsspyrna skal vera tekin á miðju og er heimilt að spyrja í hvaða átt sem er.
Skipti á leikmönnum skulu fara fram ca. á miðjum vallarhelmingi og mega fara fram hvenær sem er í leiknum.
Tekin er miðja eftir að mark er skorað.
Ekki er heimilt að skora mark úr upphafsspyrnu eða þegar miðja er tekin eftir að mark er skorað.
Allir mótherjar skulu vera í a.m.k. 5 metra fjarlægð frá knettinum í -aukaspyrnu, þar til hann er kominn í leik.
Enginn leikmaður getur verið rangstæður.
Vítaspyrna skal vera tekin í vítateigslínu fyrir miðju marki.
Markmaður:
Í aukaspyrnu innan vítateigs má leika knettinum til markvarðar án þess -að knötturinn hafi farið út fyrir vítateig.
Markmanni er heimilt að grípa boltann eftir innspark frá samherja.
Markmanni er heimilt að annað hvort kasta eða rekja boltann af stað í markspyrnu. Kjósi markmaður að sparka boltanum skal hann gera það frá jörðinni, hvar sem er í vítateignum.
Markmanni er óhemilt að taka bolta upp með höndum eftir sendingu samherja
Allir mótherjar skulu vera utan vítateigs þar til boltinn er kominn í leik.
Hornspyrna:
Hornspyrna er tekin þar sem marklína og hliðarlína skerast.
Innspark/Knattrak:
Innkast er dæmt mótherjum þess leikmanns sem síðast snerti boltann áður en hann fer allur yfir hliðarlínuna, hvort heldur með jörðu eða á lofti.
Þegar innspark er tekið skal bolti vera kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með sendingu. Óheimilt er að lyft boltanum hærra en í hnéhæð og einnig að skora beint úr innsparki.
Þegar knattrak er tekið er boltinn lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með því að rekja boltann af stað frá hliðarlínu.
Allir mótherjar skulu standa a.m.k. 2 metra frá þeim stað á hliðarlínunni sem taka á innsparkið/knattrakið frá.