Reglur
Leik- og mótsreglur
Leiktími og fyrirkomulag
- Leiktími er 2x15 mínútur.
- Leikir eru flautaðir á sama tíma. Dómarar flauta til hálfleiks og leik lokið.
- Leikin er einföld umferð, allir spila við alla. Deildarmeistari er verðlaunaður eftir síðasta leik á laugardegi.
- Eftir heila umferð skiptist deildin upp í úrslitakeppni efri og neðri hluta, þar sem spilað er upp á efsta sæti í efri hluta og efsta sæti í neðri hluta hverrar deildar.
Upphafsspyrna og miðja
- Upphafsspyrna skal tekin á miðju og er heimilt að spyrna í hvaða átt sem er.
- Tekin er miðja eftir að mark er skorað.
- Óheimilt er að skora mark úr upphafsspyrnu og þegar miðja er tekin eftir að mark er skorað.
Aukaspyrnur
Þegar aukaspyrna er tekin þarf andstæðingurinn að vera í minnst 6 metra fjarlægð.
Boltinn út fyrir hliðarlínu
Ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu skal taka innspark eða knattrak.
Innspark
- Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með sendingu.
- Óheimilt er að lyfta bolta hærra en í hnéhæð með innsparki. Endurtaka skal innsparkið ef það gerist.
- Óheimilt er að skora beint úr innsparki.
Knattrak
- Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með því að rekja boltann af stað frá hliðarlínu.
Hornspyrnur, markverðir og vítaspyrnur
- Hornspyrna er tekin þar sem marklína og hliðarlína skerast í öllum flokkum.
- Ef markvörður tekur bolta upp með höndum eftir sendingu frá samherja er dæmd bein aukaspyrna. Aukaspyrnan er tekin fyrir utan vítateig næst þeim stað sem brotið átti sér stað.
- Vítaspyrnur eru teknar á vítateigslínu.
Skiptingar
Skipti á leikmönnum skulu fara fram ca. á miðjum vallarhelmingi og mega fara fram hvenær sem er í leiknum.
Almennar reglur
Allar almennar reglur KSÍ varðandi knattspyrnu eru viðhafðar á mótinu.
Tiltal, gult og rautt spjald
Á mótinu í ár verður notast við tiltal, gult og rautt spjald.
- Tiltal — grófur leikur. Dómari ræðir við leikmann.
- Gult spjald — ítrekaður grófur leikur, eða hegðun sem dómari telur að leikmaður þurfi kælingu vegna. Leikmaður fær kælingu að lágmarki 2 mínútur. Nýr leikmaður má koma inn í staðinn.
- Rautt spjald — leikmaður uppvís að ítrekað grófum leik, óíþróttamannslegri hegðun eða öðru sem á ekki heima á knattspyrnuvelli. Lið spilar restina af leiknum einum færri.
Jöfn stig
Ef lið verða jöfn að stigum að hraðmóti eða deildarkeppni lokinni ræðst röðin í þessari röð:
- Innbyrðis viðureign
- Fæst mörk fengin á sig
- Markatala
- Fleiri mörk skoruð
- Hlutkesti
Dómgæsla
Við leggjum mikið upp úr því að hafa góða dómgæslu á mótinu og að dómarar séu einnig að hjálpa til við að kenna leikinn á meðan honum stendur og leiðbeina á jákvæðan hátt. Allir dómarar fá stutt námskeið fyrir mót þar sem vel verður farið yfir reglur og áherslur í dómgæslu. Dómgæsla er m.a. í höndum meistaraflokks karla og kvenna í knattspyrnu.