Reglur
Keppt er í einfaldri deildarkeppni þar sem þrjú stig eru fyrir sigur og eitt stig fyrir jafntefli. Fimm leikmenn eru inná frá hvoru liði, 4 útispilarar og einn markvörður og er leiktími 1x12 mínútur. Frjálsar skiptingar eru í leikjum.
Sigurleikur er ekki skráður með meiri en 3 mörkum. (Dæmi: Lið A 4 - 0 Lið B. Leikurinn skráður 3-0. Lið A 6 - 2 Lið B. Leikurinn skráður 5 - 2 mörk liðsins sem tapar eru alltaf skráð)
Ef lið eru jöfn að stigum eftir að móti líku eru eftirfarandi reglur til að skera út um það lið sem endar ofar:
Innbyrðis viðureign Færri mörk fengin á sig Markatala
,,Bannað að negla regla” er regla sem bannar löng útspörk frá marki og hvetur strákana til þess að spila boltanum út frá markverði.
Varnarmenn verða því að hlaupa fyrir aftan ákveðna pressulínu áður en pressa hefst. Þjálfarar og dómarar aðstoða við það að halda þessari reglu í leikjum. Með þessari reglu verður möguleikinn á spili liðsins meiri.
Innspark/knattrak: Í stað innkasts skal setja boltann niður og þegar hann er kyrr þá má annað hvort senda niðri (bannað að lyfta boltanum) eða rekja á stað. Varnarmaður má vera 2m frá.
Ef að annað liðið er með 3ja marka forystu er mótherja heimilt að bæta við auka leikmanni inn á völlinn en taka hann útaf ef markamunur verður minni en 3 mörk.
Hornspyrna: Sömu reglur gilda um hornspyrnur og um innspörk/knattrak
Allar aðrar almennar reglur KSÍ varðandi knattspyrnu eru viðhafðar á mótinu.
A.T.H Sérstakar leikreglur í Set, Borgarverk og Huppu Deildum Í þessum deildum er spilað með þá reglu að markmaður má ekki taka upp bolta eftirsendingu frá samherja. Bein aukaspyrna er á vítateig ef brot er á þessari reglu.