
Jakómót 2026
2026-06-06 – 2026-06-07
Jakómótið er fyrir yngra ár 7. flokks karla. Mótið er deildarskipt og eru deildirnar getuskiptar eftir óskum þjálfara.
Leikir hefjast laugardaginn 6 júní kl 09:00 og lýkur keppni á sunnudegi um kl 13:00
Leikjafyrirkomulag og tímasetningar leikja verður sent á þjálfara og birtist á þessari síðu þegar nær dregur
Verð á hvern leikmann er 8500 kr.
Á Jakómótinu dæma strákar í 3 flokki karla. Margir dómaranna eru að stíga sín fyrstu spor og því jafn mikilvægt að þeirra fyrsta upplifun af dómgæslu sé góð með ykkar hjálp.
Allir dómarar fá stutt námskeið fyrir mót þar sem vel verður farið yfir hvernig dæmt er með bannað að negla reglunni og hvernig við leiðbeinum krökkunum á jákvæðan hátt.
Allir leikmenn fá veglega þátttökugjöf frá JAKO að móti loknu, ásamt hressingu.