Reglur
Keppt er í einfaldri deildarkeppni þar sem þrjú stig eru fyrir sigur og eitt stig fyrir jafntefli. Fimm leikmenn eru inná frá hvoru liði, 4 útispilarar og einn markvörður. Frjálsar skiptingar eru í leikjum. Leiktími er 2 x 8 mínútur.
,,Bannað að negla regla” er regla sem bannar löng útspörk frá marki og hvetur strákana til þess að spila boltanum út frá markverði. Varnarmenn verða því að hlaupa fyrir aftan ákveðna pressulínu áður en pressa hefst. Þjálfarar og dómarar aðstoða við það að halda þessari reglu í leikjum. Með þessari reglu verður möguleikinn á spili liðsins meiri.
Innspark/knattrak: Í stað innkasts skal setja boltann niður og þegar hann er kyrr þá má annað hvort senda niðri (bannað að lyfta boltanum) eða rekja á stað. Varnarmaður má vera 2m frá.
Ef að annað liðið er með 3ja marka forystu er mótherja heimilt að bæta við auka leikmanni inn á völlinn.
Hornspyrna: Sömu reglur gilda um hornspyrnur og um innspörk/knattrak
Allar aðrar almennar reglur KSÍ varðandi knattspyrnu eru viðhafðar á mótinu