
2026-06-12 – 2026-06-12
A.T.H leggjum snemma af stað á mótsdegi vegna umferðar. Búast má við allt að 90 mín í ferðalag frá Reykjavík og á Selfoss. Endilega komið snemma. Öll lið eru velkomin inn á vellina og svæðið eins snemma og menn vilja :)
Kappahl mótið er fyrir stelpur í 6.flokki og er deildarskipt keppni. Deildirnar eru getuskiptar eftir óskum þjálfara og eru nefndar í höfuðið á leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins.
Mótið hefst klukkan 16:00 föstudaginn 12. júní og lýkur keppni um kl 20:00 Markmið mótsins er frábær upplifun fyrir öll, leikmenn, þjálfara, fjölskyldur og aðra gesti.
frekari upplýsingar má fá hjá gunnar@umfs.is
Mikil áhersla er á góða og jákvæða dómgæslu á mótinu og að dómarar hjálpi til við að kenna leikinn á meðan honum stendur og leiðbeina á jákvæðan hátt.
Meistaraflokkur kvenna ásamt yngri leikmönnum deildarinnar sjá um dómgæslu á mótinu.
Bikarar og verðlaunapeningar eru veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverri deild, Gull, silfur og brons.
Þegar að riðlakeppni lýkur fara þrjú efstu liðinn inn í Kappahl höll og ná þar í verðlaunamiða sem veitir þeim aðgang að sviðinu. þar eru þeim veitt verðlaun og foreldrar geta tekið myndir af verðlaunahöfum . Mikilvægt er að passa vel uppá miðann.
Allir leikmenn fá veglega þátttökugjöf frá kappahl að móti loknu.