Mikil áhersla er á góða og jákvæða dómgæslu á mótinu og að dómarar hjálpi til við að kenna leikinn á meðan honum stendur og leiðbeina á jákvæðan hátt.
Meistaraflokkur kvenna ásamt yngri leikmönnum deildarinnar sjá um dómgæslu á mótinu.
Bikarar og verðlaunapeningar eru veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverri deild, Gull, silfur og brons.
Þegar að riðlakeppni lýkur fara þrjú efstu liðinn inn í Kappahl höll og ná þar í verðlaunamiða sem veitir þeim aðgang að sviðinu. þar eru þeim veitt verðlaun og foreldrar geta tekið myndir af verðlaunahöfum . Mikilvægt er að passa vel uppá miðann.
Allir leikmenn fá veglega þátttökugjöf frá kappahl að móti loknu.