


30. ágúst 2026
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Tungubökkum sunnudaginn 30. ágúst á okkar stærsta Gæðabakstursmóti frá upphafi!
Fram undan er sannkölluð fótboltaveisla þar sem 171 lið frá 17 félögum koma saman og fylla Tungubakka af lífi frá morgni til kvölds.
Hér á mótssíðunni finnið þið leikjadagskrá, vallarkort, leikreglur og allar helstu upplýsingar fyrir mótsdaginn.
Við hvetjum þjálfara og liðsstjóra til að kynna sér dagskrá og vallarskipulag vel fyrir komu.
Takk kærlega fyrir frábærar viðtökur við mótinu – við hlökkum til að sjá ykkur á Tungubökkum! ⚽️