Reglur
Leikreglur Gæðabakstursmótsins
Fjöldi leikmanna
- 6. flokkur: 7 leikmenn inni á vellinum hverju sinni.
- 7. & 8. flokkur: 5 leikmenn inni á vellinum hverju sinni.
- Fjöldi varamanna og skiptinga er ótakmarkaður.
- Ekki þarf að tilkynna dómara þegar skipting fer fram.
- Leikmaður sem hefur farið af velli má koma aftur inn á síðar í leiknum.
- Úrslit leikja eru ekki skráð á mótinu.
Stærð knattar
- 6. flokkur: Bolti nr. 3.
- 7. & 8. flokkur: Bolti nr. 3.
Leiktími
- 6. flokkur: 1 x 16 mínútur – 20 mínútna leikhólf.
- 7. & 8. flokkur: 1 x 12 mínútur – 15 mínútna leikhólf.
Mikilvægt er að allir leikir hefjist á réttum tíma, þar sem dagskrá mótsins er þétt.
Lið sem eiga næsta leik skulu vera tilbúin við völlinn áður en leiktími hefst. Ef lið er ekki tilbúið á réttum tíma styttist leikurinn sem því nemur, þannig að næsti leikur geti hafist samkvæmt dagskrá.
Tímaverðir halda utan um leiktíma á öllum völlum og gefa viðmiðunarflaut þegar leikir eiga að hefjast og þegar leiktíma lýkur.
Rangstaða
Ekki er dæmd rangstaða á mótinu.
Sending til markmanns
Markverði er heimilt að taka boltann upp þótt samherji hafi sent boltann til hans.
Aukaspyrnur
Við aukaspyrnu skulu mótherjar vera í a.m.k. 6 metra fjarlægð frá boltanum.
Hornspyrnur
Hornspyrna skal tekin þar sem marklína og vítateigur skerast.
Vítaspyrnur
Vítaspyrna skal tekin 8 metra frá marklínu.
Upphafsspyrna
Við upphafsspyrnu skal tryggja að mótherjar séu í hæfilegri fjarlægð frá boltanum.
Markmiðið er að leikmenn fái svigrúm til að hefja leikinn og að mótherjar séu ekki komnir alveg upp að þeim þegar miðja er tekin.
Innspörk og dómarauppkast
Ekki er heimilt að skora beint úr innsparki eða dómarauppkasti.
Spila þarf að minnsta kosti eina sendingu áður en skotið er á mark.
Að lokum
Munum að þetta er mót fyrir krakkana.
Leyfum þeim að njóta þess að spila fótbolta, prófa sig áfram og hafa gaman. Sýnum leikmönnum, dómurum, þjálfurum og mótherjum virðingu og hjálpumst að við að gera Gæðabakstursmótið að jákvæðri og skemmtilegri upplifun fyrir alla.