Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Gæðabakstursmótið sunnudaginn 30. ágúst á Tungubökkum í Mosfellsbæ!
Fram undan er okkar stærsta Gæðabakstursmót frá upphafi og verður mikið líf og fjör á Tungubökkum allan daginn.
Leikjadagskrá mótsins er birt hér á Keppniskerfi.
Við biðjum þjálfara og liðsstjóra um að skoða vel leikjatíma og vallarnúmer sinna liða áður en komið er á svæðið.
Mikilvægt er að liðin séu tilbúin við sinn völl tímanlega fyrir hvern leik svo dagskráin haldist samkvæmt áætlun.
Nánari leikreglur mótsins má finna undir „Reglur“ hér á síðunni.
Mótið fer fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Vellir verða númeraðir og vallarkort mótsins má finna undir „Kort“ hér á mótssíðunni.
Við mælum eindregið með að þjálfarar og liðsstjórar kynni sér staðsetningu sinna valla áður en mótið hefst.
Veitingasala verður á svæðinu yfir daginn og verður nóg um að vera fyrir leikmenn og gesti.
Við biðjum alla um að ganga vel um svæðið og hjálpa okkur að halda Tungubökkum snyrtilegum yfir daginn.
Aðalstyrktaraðili

Við erum gríðarlega þakklát fyrir frábæra skráningu á mótið. 171 lið frá 17 félögum taka þátt og verða leiknir tæplega 400 leikir á Tungubökkum yfir daginn.
Það stefnir því í sannkallaða fótboltaveislu og við hlökkum mikið til að taka á móti leikmönnum, þjálfurum, foreldrum og öðrum gestum.
Takk fyrir frábærar viðtökur við mótinu – sjáumst hress á Tungubökkum á sunnudaginn!
Afturelding